English Icelandic
Birt: 2019-01-23 17:15:12 CET
Síminn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Síminn hf. - Tilnefningarnefnd auglýsir eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnar Símans

Síminn hf. setti á laggirnar tilnefningarnefnd í samræmi við ákvörðun hluthafafundar félagsins þann 28. nóvember 2018, sbr. einnig ályktun aðalfundar þann 15. mars 2018. Tilgangur tilnefningarnefndar Símans hf. er að huga að hagsmunum allra hluthafa og tilnefna frambjóðendur í stjórn félagsins. Tilnefningarnefnd fer yfir þekkingu og reynslu stjórnar sem heild og í framhaldi metur frambjóðendur út frá þekkingu og reynslu og hvort þeir geti sinnt skyldum sínum samkvæmt samþykktum félagsins, lögum um hlutafélög nr. 2/1995, auk annarra laga og reglugerða sem gilda um félagið.

Ekki er sjálfgefið að breyta þurfi samsetningu stjórnar á hverjum tíma en slíkt er háð aðstæðum hverju sinni, virkni núverandi stjórnar og vilja núverandi stjórnarmanna til áframhaldandi stjórnarsetu.

Nefndin auglýsir hér með eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnar Símans vegna aðalfundar félagsins sem haldinn verður 21. mars næstkomandi.

Nefndin metur frambjóðendur með tilliti til reynslu, þekkingar og viðeigandi hæfni til að starfa sem stjórnarmenn hjá félaginu samkvæmt hæfnisviðmiðum félagsins.  Á grundvelli niðurstaðna mun nefndin leggja fram tillögur sínar um framboð til stjórnar fyrir hvern aðalfund.

Óskað er eftir að tilnefningar eða framboð séu send á netfang nefndarinnar, tilnefningarnefnd@siminn.is ásamt framboðseyðublaði, stuttu kynningarbréfi og ferilskrá fyrir 10. febrúar 2019. Fresturinn er settur til þess að tilnefningarnefnd geti sinnt skyldum sínum og fjallað um tilnefningar og framboð og skilað rökstuddu áliti áður stjórn boðar til aðalfundar. Starfsemi tilnefingarnefndar takmarkar ekki heimild frambjóðanda til þess að skila inn framboðum til stjórnar allt fram að fimm dögum fyrir aðalfund.

Nánari upplýsingar um tilnefningarnefnd er að finna á vef félagsins, https://www.siminn.is/forsida/siminn/fjarfestar/tilnefningarnefnd