Icelandic
Birt: 2019-01-11 13:50:12 CET
Hagar hf.
Boðun hluthafafundar

Endanleg dagskrá hluthafafundar 18. janúar 2019

Stjórn Haga hf. hefur boðað til hluthafafundar í félaginu, sem haldinn verður á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík, föstudaginn 18. janúar 2019 kl. 09:00.


Engar breytingatillögur hafa borist félagsstjórn innan tilskilins frests og er því dagskrá fundarins óbreytt frá fyrri tilkynningu félagsins þann 21. desember sl.


Hluthafar sem sjá sér ekki fært að mæta til fundar og heimila ekki öðrum aðila til að mæta á fund í sínu umboði geta tekið þátt í atkvæðagreiðslu á fundinum bréflega. Á vef Haga, www.hagar.is/fjarfestaupplysingar/hluthafafundir, má sjá nánari leiðbeiningar og atkvæðaseðil.

Stjórn félagsins vill árétta að forsvarsmenn hluthafa sem sækja fundinn, þ.e. forsvarsmenn fyrirtækja, lífeyrissjóða, fjárfestingasjóða, einstaklinga eða annarra hluthafa, ber að skila umboði við skráningu inn á fundinn. Einnig verða einstaklingar beðnir um að framvísa persónuskilríkjum.


Stjórn Haga hf.