English Icelandic
Birt: 2018-12-13 17:00:00 CET
Nasdaq Nordic
Fjárfestatilkynningar

Endurskoðun samsetningar OMXI8 vísitölunnar

Reykjavík, 13. desember, 2018 – Nasdaq (NASDAQ:NDAQ) tilkynnir í dag niðurstöður endurskoðunar á OMX Iceland 8 vísitölunni (Nasdaq Iceland: OMXI8), sem gerð er tvisvar á ári. Endurskoðuð samsetning tekur gildi 2. janúar 2019. Reginn fasteignafélag hf. (REGINN) kemur nýtt inn í vísitöluna í staðinn fyrir Skeljung hf. (SKEL).

Samsetning OMXI8 vísitölunnar frá og með 2. janúar 2019 verður því eftirfarandi:

Eik fasteignafélag hf. (EIK)

Festi hf. (FESTI)

Hagar hf. (HAGA)

Icelandair Group hf. (ICEAIR)                      

Marel hf. (MARL)

Reginn hf. (REGINN)

Reitir fasteignafélag hf. (REITIR)

Síminn hf. (SIMINN)

OMX Iceland 8 vísitalan er Úrvalsvísitala Nasdaq Iceland og er samsett af þeim átta félögum sem hafa mestan seljanleika á Nasdaq Iceland. Vægi félaga í OMX Iceland 8 vísitölunni ræðst af flotleiðréttu markaðsvirði, sem þýðir að einungis það hlutafé sem ætla má að myndi grunn að virkum viðskiptum á Nasdaq Iceland er hluti af vísitölunni.

 

#

 

Um Nasdaq vísitöluvörur

Nasdaq Global Indexes hefur síðan 1971 kynnt til sögunnar nýstárlegar, leiðandi og gagnsæjar vísitölur. Vísitölurnar okkar spanna lönd og eignaflokka og innihalda ýmiskonar vísitölufjölskyldur eins og Dividend Achievers, Global, Nordic, Green Economy, Sharia og Commmodity. Við bjóðum stöðugt upp á ný tækifæri fyrir fyrirtæki sem bjóða upp á fjármálaafurðir af alls kyns tagi og fyrir sjóðsstjóra til að meta áhættu og frammistöðu. Nasdaq Global Indexes býður einnig upp á sérsniðna vísitöluþjónustu sem og lausnir til valinna fjármálafyrirtækja. Frekari upplýsingar um vísitölur Nasdaq má finna hér  https://indexes.nasdaqomx.com/.

 

Um Nasdaq

Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi á alþjóðavísu í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 90 mörkuðum í 50 löndum og knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,900 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 12 billjón Bandaríkjadala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/

 

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm.

 

         FJÖLMIÐLASAMSKIPTI
          Kristín Jóhannsdóttir
          868 9836
          kristin.johannsdottir@nasdaq.com