Icelandic
Birt: 2018-12-11 17:56:52 CET
Origo hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Origo hf. - Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

REYKJAVÍK - 11. desember 2018  

Á aðalfundi Origo hf. (ORIGO) þann 2. mars 2018 var samþykkt að heimila stjórn kaup á eigin hlutum í félaginu á næstu 18 mánuðum. Heimildin nær til allt að 10% af hlutafé félagsins þ.e. að hámarki 45.873.998 að nafnverði. Stjórn Origo hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé og til þess að uppfylla kaupréttaráætlun félagsins.  

Hámarksfjöldi hluta sem áætlunin kveður á um að verði keyptir eru 11.600.000 hlutir að nafnverði, en það jafngildir um 2,5 % af útgefnu hlutafé félagsins. Fjárhæð endurkaupanna verður þó aldrei hærri en kr. 300.000.000. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 7. mars 2019 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu. 

Endurkaupin verða framkvæmd af Kviku banka hf. sem tekur allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu. Framkvæmd endurkaupaáætlunar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.  

Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq á Íslandi, hvort sem er hærra. Hámarksmagn hvers viðskiptadags er 281.723 hlutir að nafnvirði sem var fjórðungur meðalveltu í nóvember mánaðar 2018. 

Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni hefjast fimmtudaginn 12. desember nk. 

Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir. 

Origo á 159.983 hluti að nafnverði í félaginu á þessum tímapunkti.  

Nánari upplýsingar 

Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@origo.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@origo.is. 

ORIGO HF. 

Origo. (NASDAQ OMX: Origo.IC) er samstæða fyrirtækja í upplýsingatækni. Origo er þjónustufyrirtæki og hlutverk þess felst í að aðstoða viðskiptavini að ná enn betri árangri í sínum rekstri með aðstoð upplýsingatækni, sérfræðiþekkingu starfsfólks og lipurri þjónustu. Hjá samstæðunni starfa um 550 manns. Dótturfélög Origo eru TEMPO ehf og Applicon AB. Hlutabréf Origo hf. eru skráð í Kauphöll Íslands. Nánari upplýsingar er að finna á www.origo.is 

Til athugunar fyrir fjárfesta: 

Origo vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna af birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar fréttatilkynningin er birt og takmarkast gildi þeirra við það sem segir í fyrirvara þessum.