English Icelandic
Birt: 2018-12-06 17:13:04 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Landsbankinn nýtir heimild til kaupa á eigin hlutum

Bankaráð Landsbankans hefur ákveðið að nýta heimild til kaupa á eigin hlutum í bankanum sem veitt var á aðalfundi bankans 21. mars 2018. Samkvæmt endurkaupaáætluninni munu kaupin nema að hámarki 72,5 milljónum hluta eða sem nemur 0,3% af útgefnu hlutafé. Landsbankinn hefur þrisvar áður gefið hluthöfum kost á að selja hluti sína í bankanum, síðast í febrúar 2017.

Landsbankinn býðst til að kaupa hluti af hluthöfum á endurkaupatímabili sem stendur frá og með 10. desember 2018 til og með 20. desember 2018.

Þeir hluthafar sem ákveða að taka boði bankans skulu fylla út tilkynningu þar að lútandi og senda bankanum. Eyðublað fyrir tilkynninguna er aðgengilegt á vef bankans. Tilkynningar verða afgreiddar á tímabilinu í þeirri röð sem þær berast bankanum þar til hámarkinu (72,5 milljónum hluta) verður náð. Verði hámarkinu náð á endurkaupatímabilinu verða frekari tilkynningar því ekki afgreiddar.

Í samræmi við ákvörðun aðalfundar býðst Landsbankinn til að kaupa hvern hlut á endurkaupatímabilinu á gengi sem samsvarar hlutfallinu á milli eigin fjár sem tilheyrir hluthöfum bankans og hlutafjár bankans, samkvæmt síðasta birta uppgjöri áður en endurkaupatímabilið hefst.

Samkvæmt árshlutauppgjöri Landsbankans fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2018 er eigið fé sem tilheyrir hluthöfum bankans 235.892 milljónir króna og útistandandi hlutir 23.640 milljónir. Í samræmi við framangreint býðst Landsbankinn því til að kaupa hvern hlut á genginu 9,9787 á endurkaupatímabilinu.

Heildarfjöldi hluta í bankanum er 24.000 milljón hlutir. Fjöldi hluthafa í bankanum er 931. Ríkissjóður á um 23.567 milljón hluti eða um 98,2% af útgefnum hlutum. Bankinn á um 360,5 milljónir eigin hluti eða um 1,5% af útgefnu hlutafé. Aðrir hluthafar en ríkissjóður og bankinn eiga um 72,5 milljónir hluta eða um 0,3% af útgefnu hlutafé.

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar fyrir hluthafa sem vilja nýta sér boð bankans er að finna á vef Landsbankans, www.landsbankinn.is/endurkaup. Þá verða upplýsingar veittar í síma 410 4040.

Upplýsingar veita:

Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi, pr@landsbankinn.is og í síma 410 6263

Hanna Kristín Thoroddsen, fjárfestatengsl, ir@landsbankinn.is og í síma 410 7310