English Icelandic
Birt: 2018-11-15 17:29:32 CET
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki semur við Citigroup Global Markets Limited (Citi) um ráðgjöf við fyrirhugaða sölu hlutafjár í Valitor

Arion banki hefur samið við Citi um ráðgjöf vegna fyrirhugaðra breytinga á eignarhaldi Valitor, dótturfélagi Arion banka, sem gætu falið í sér sölu á meirihluta hlutafjár eða öllu hlutafé í Valitor. Gera má ráð fyrir frekari upplýsingum á næstu 6-12 mánuðum. Valitor býður fjölbreyttar lausnir á sviði greiðslumiðlunar í Evrópu og er með starfsstöðvar á Íslandi, í Danmörku og í Bretlandi.

Nánari upplýsingar veita Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, theodor.fridbertsson@arionbanki.is, s. 856 6760 og Haraldur Guðni Eiðsson, samskiptasviði Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.