English Icelandic
Birt: 2018-11-15 17:15:24 CET
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki gefur út víkjandi skuldabréf í sænskum krónum

Arion banki gaf í dag út skuldabréf eiginfjárþáttar 2 að fjárhæð 500 milljónir sænskra króna. Skuldabréfin eru gefin út til 10 ára með innköllunarheimild af hálfu útgefanda eftir 5 ár (10NC5). Skuldabréfin, sem eru fyrsta víkjandi útgáfa Arion banka, eru með fljótandi vexti 310 punkta ofan á millibankavexti í sænskum krónum. Skuldabréfin teljast til eiginfjárþáttar 2 samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Útgáfa skuldabréfanna styrkir eiginfjárgrunn bankans og er áfangi í vegferð hans að ná fram hagkvæmri skipan eiginfjár. 

Gert er ráð fyrir að útgáfan fái lánshæfiseinkunnina BBB- frá S&P Global Ratings. Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN útgáfuramma bankans og er stefnt að töku skuldabréfanna til viðskipta í kauphöllinni í Lúxemborg þann 22 nóvember 2018.

Nordea, Swedbank og SEB sáu um útgáfuna fyrir hönd bankans.


Nánari upplýsingar veita Haraldur Guðni Eiðsson, samskiptasviði Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108 og Eiríkur Magnús Jensson forstöðumaður fjármögnunar, eirikur.jensson@arionbanki.is s. 856 7468.