Icelandic
Birt: 2018-11-02 20:06:30 CET
Brim hf.
Niðurstöður hluthafafundar

HB Grandi hf. – Kaupin á Ögurvík ehf. samþykkt


Á framhaldshluthafafundi HB Granda í dag kynntu starfsmenn Kviku banka hf. samantekt minnisblaðs um fyrirhuguð kaup HB Granda á öllu hlutafé Ögurvíkur í samræmi við ákvörðun hluthafa á upphaflegum hluthafafundi í októbermánuði. Í kjölfarið var tekin fyrir tillaga stjórnar til hluthafafundarins um að staðfesta ákvörðun stjórnar um kaupin. Var tillagan samþykkt með 95,8% atkvæða þeirra hluthafa sem fundinn sátu. Á móti voru hluthafar sem höfðu að baki sér 4,2% þess hlutafjár sem mætt var fyrir á fundinum.

Viðhengi


Kynning a aliti FRK a kaupum HB Granda a Ogurvik ehf.pdf