English Icelandic
Birt: 2018-10-17 17:31:00 CEST
Lánamál ríkisins
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Skiptiútboð óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 20 0205 fyrir RIKB 19 0226

Föstudaginn 19. október kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins með tilboðsfyrirkomulagi.

Boðin verða til sölu óverðtryggð bréf í flokkunum RIKB 20 0205. Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði.

Athugið að aðeins er hægt að kaupa bréf í RIKB 20 0205 með sölu á RIKB 19 0226, sem fellur á gjalddaga 26. febrúar 2019. Lánamál ríkisins kaupa RIKB 19 0226 á fyrirfram ákveðnu verði þ.e. hreina verðinu 101,219 (106,972425 með áföllnum vöxtum m.v. 100 kr. nafnverðseiningu) m.v. uppgjör 24. október 2018. Til skýringar þá jafngildir verðið 4,93% í ávöxtunarkröfu. Andvirði bréfanna ásamt áföllnum vöxtum kemur þá sem greiðsla fyrir kaupum á nýjum bréfum.

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði.

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 24. október 2018.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9635.

Viðhengi


Frett 17. okt. 2018.pdf
Utbodsskilmalar 19. okt. 2018.pdf