Icelandic
Birt: 2018-10-17 13:36:32 CEST
TM hf.
Fjárhagsdagatal

TM - Uppgjör þriðja ársfjórðungs 2018

TM mun birta uppgjör þriðja ársfjórðungs 2018 eftir lokun markaða fimmtudaginn 25. október og býður til kynningar á afkomu félagsins föstudaginn 26. október kl. 8.30. Þar mun Sigurður Viðarsson forstjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum félagsins að Síðumúla 24, 4. hæð.

Árshlutareikning og afkomutilkynningu verður hægt að nálgast á vef félagsins, TM.is. Kynning á uppgjörinu verður einnig aðgengileg á sama stað við upphaf kynningarfundar.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í gegnum vefinn á slóðinni:

Https://global.gotomeeting.com/join/292858189