Sjóvá: Uppgjör 2. ársfjórðungs 2018 verður birt 23. ágúst - kynningarfundur sama dag kl. 16:15Sjóvá-Almennar tryggingar hf. munu birta uppgjör annars ársfjórðungs 2018 eftir lokun markaða fimmtudaginn 23. ágúst. Markaðsaðilum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð kl. 16:15 þann sama dag. Hermann Björnsson forstjóri mun kynna uppgjörið og svara spurningum. Kynning á uppgjörinu verður aðgengileg á vef Sjóvár www.sjova.is frá þeim tíma er kynningarfundurinn hefst. Einnig verður hægt að fylgjast með fundinum á vefnum á slóðinni www.sjova.is/afkomukynningar.
|