Icelandic
Birt: 2018-08-15 14:47:33 CEST
Vátryggingafélag Íslands hf.
Fjárhagsdagatal

VÍS: Birting uppgjörs annars ársfjórðungs 2018 og kynningarfundur

VÍS mun birta uppgjör annars ársfjórðungs eftir lokun markaðar þann 22. ágúst næstkomandi.

Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn daginn eftir, fimmtudaginn 23. ágúst, í húsnæði félagsins, Ármúla 3, kl. 8:30.

Á fundinum mun Helgi Bjarnason forstjóri kynna uppgjör félagsins og svara spurningum.

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á íslensku og á ensku á heimasíðu VÍS: https://www.vis.is/vis/fjarfestar/fjarfestar/. Að auki verður hægt að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu og nálgast upptöku að honum loknum á vefslóðinni: https://www.vis.is/vis/fjarfestar/fjarfestafundur

Nánari upplýsingar veitir Andri Ólafsson, samskiptastjóri VÍS, í síma 660-5105