English Icelandic
Birt: 2018-08-03 15:19:46 CEST
ÍL-sjóður
Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Drífa Snædal tilkynnir úrsögn úr stjórn Íbúðalánasjóðs.

Drífa Snædal, stjórnarmaður hjá Íbúðalánasjóði, tilkynnti félags- og jafnréttismálaráðherra í dag úrsögn sína úr stjórn Íbúðalánasjóðs. Tekur úrsögnin gildi frá og með deginum í dag, 3. ágúst 2018. Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að hún þakkar það traust sem henni hefur verið sýnt í þau ríflega fjögur ár sem hún hefur setið í stjórninni.