English Icelandic
Birt: 2018-07-31 18:38:10 CEST
Icelandair Group hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Krefjandi árferði

  • Heildartekjur jukust um 9% milli ára og námu 399,0 milljónum USD samanborið við 367,3 milljónir USD árið áður.
  • EBITDA nam 14,7 milljónum USD samanborið við 40,6 milljónir USD á síðasta ári.
  • Þrýstingur á fargjöld, lakari sætanýting og einskiptiskostnaður vegna truflana í flugáætlun skýra lækkun á afkomu á milli ára. 
  • Eiginfjárhlutfall 32% í lok júní.
  • Nettó vaxtaberandi skuldir nema 92,5 milljónum USD.
  • Handbært fé og markaðsverðbréf nema 250,8 milljónum USD
  • EBITDA spá 120-140 milljónir USD.


Björgólfur Jóhannsson, forstjóri:

„Við höfum undanfarið unnið að viðamiklum breytingum á félaginu sem munu skila sér í enn sterkara fyrirtæki til framtíðar. Þar hefur allt verið til skoðunar, meðal annars skipulag, stefna, leiðakerfi, flotauppbygging, fargjaldaflokkar og á hvaða sviðum félagið ætlar að starfa til framtíðar. Við höfum hafið ferli sem miðar að því að selja hótelreksturinn, í skoðun er uppbygging nýs tengibanka á Íslandi meðfram núverandi tengibanka og nýjar Boeing MAX vélar komu í flotann fyrr á árinu. Þá hafa verið gerðar umfangsmiklar breytingar á skipulagi félagsins. Markmiðið er að skerpa enn frekar á áherslum okkar i sölu og markaðsmálum annars vegar og þjónustu við viðskiptavini hins vegar og styrkja þannig félagið.

Afkoma annars ársfjórðungs er lakari en áætlanir gerðu ráð fyrir. Spár okkar um hækkandi meðalverð á síðari hluta ársins hafa hingað til ekki gengið eftir. Þetta gerist þrátt fyrir að olíuverð hafi hækkað mikið. Samkeppnin á mörkuðum hefur sjaldan verið meiri sem kemur fram með þessum hætti. Við gerum áfram ráð fyrir að til lengri tíma muni hækkun aðfanga leiða til hækkunar meðalverðs.

Aðstæður í rekstri flugfélaga eru vissulega krefjandi um þessar mundir. Icelandair Group er hins vegar í góðri stöðu til að takast á við áskoranir og nýta tækifæri sem upp kunna að koma við slíkar aðstæður.“


Nánari upplýsingar veita:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími: 896-1455
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími: 665-8801

Viðhengi


Frettatilkynning Q2 2018.pdf
Icelandair Group hf 30 6 2018.pdf