Icelandic
Birt: 2018-07-27 18:09:43 CEST
Brim hf.
Niðurstöður hluthafafundar

HB Grandi hf – Niðurstöður hluthafafundar haldinn 27. júlí 2018

Kjör tveggja stjórnarmanna

Danielle Pamela Neben og Kristrún Heimisdóttir voru sjálfkjörnar

Tillaga til ályktunar vegna tilnefningarnefndar

Eftirfarandi tillögu var samþykkt að vísa til stjórnar

„Hluthafafundur HB Granda hf. 27. júlí 2018 ályktar að fela stjórn félagsins að undirbúa að koma á fót tilnefningarnefnd innan félagsins í samræmi við leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja, útgefnar af Viðskiptaráði Íslands, Nasdaq Iceland og Samtökum atvinnulífsins. Tillaga stjórnar að fyrirkomulagi tilnefningarnefndar hjá félaginu og starfsreglur fyrir hana skal borin undir hluthafafund til samþykktar við fyrsta tækifæri. Miða skal við að fulltrúar í tilnefningarnefnd séu kosnir með beinni kosningu á hluthafafundi, nema hluthafafundur samþykki það fyrirkomulag að stjórn skipi einn stjórnarmann í nefndina.“