Icelandic
Birt: 2018-07-10 18:21:50 CEST
Vátryggingafélag Íslands hf.
Innherjaupplýsingar

VÍS: Afkomuviðvörun á 2. ársfjórðungi

Þann 20. júní sl. sendi félagið út afkomuviðvörun í tengslum við afkomu á öðrum ársfjórðungi 2018. Þar kom fram að afkoma á öðrum ársfjórðungi yrði alls um 700 milljónum króna lakari fyrir skatta en afkomuspá hafði gert ráð fyrir, þ.e. að hagnaður félagsins yrði 92 milljónir króna fyrir skatta í stað 792 milljóna króna.

Við vinnslu árshlutauppgjörs annars ársfjórðungs hefur nú komið í ljós að um 300 milljón króna tap verður í fjórðungnum í stað 92 milljón króna hagnaðar fyrir skatta. Stærsta frávikinu veldur óhagstæð þróun á verðbréfamörkuðum síðustu dagana í júní, eftir að félagið sendi út síðustu afkomuviðvörun.

Hagnaður félagsins á fyrri helmingi ársins nemur um 600 milljónum króna fyrir skatta.

Uppfærð 12 mánaða afkomuspá (3F 18 – 2F 19) verður birt með uppgjöri annars ársfjórðungs þann 22. ágúst næstkomandi.

Nánari upplýsingar veitir Andri Ólafsson samskiptastjóri í síma 660-5105.