Eik fasteignafélag hf.: Nýr framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Sandra Hlíf Ocares hefur verið ráðin í nýtt starf framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar Eikar fasteignafélags hf. Viðskiptaþróun mun sjá um nýja tekjuöflun með það að markmiði að nýta betur það sem eignasafnið hefur upp á að bjóða. Sandra lauk BA gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2007, Mag. Jur gráðu frá sama skóla árið 2009. Sandra gegndi starfi kosningastjóra fyrir sveitarstjórnarkosningar árið 2018, starfaði sem sjálfstætt starfandi lögmaður árið 2017 og árin 2011-2013, var yfirlögfræðingur Plain Vanilla á árunum 2013-2017. Þá var hún formaður Barnaverndarnefndar Reykjavíkur árin 2010-2013 og framkvæmdastjóri þjónustusviðs Alterna 2010-2011. Sandra hefur gegnt ýmsum stjórnarstörfum og starfar nú sem varaformaður stjórnar ÍV sjóða. Þá var hún varamaður í stjórn Vátryggingafélags Íslands á árinu 2017, sat í stjórn Icelandic Gaming Industry á árunum 2015-2016 og sat í ritstjórn Tímarits Lögréttu árin 2003-2004. Sandra hefur yfirgripsmikla og hagnýta reynslu á sviði stjórnunar, samningagerðar, nýsköpunar og stafrænnar þróunar. Félagið þakkar þann mikla áhuga á félaginu sem fjölmargar góðar umsóknir í starfið báru vitni um. Nánari upplýsingar veitir: Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is, s. 590-2200
|