HB Grandi hf - Niðurstöður aðalfundar haldinn 4. maí 2018 Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins Fundurinn samþykkti eftirfarandi tillögur: Tillaga um greiðslu arðs Aðalfundur HB Granda hf. haldinn 4. maí 2018 samþykkir að greidd verði 0,7 kr. á hlut í arð vegna ársins 2017, alls að fjárhæð 1.269.561.106 kr. Arðurinn verður greiddur 31. maí 2018. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 4. maí 2018 og arðleysisdagur því 7. maí 2018. Arðsréttindadagur er 8. maí 2018, arður greiðist þeim sem skráðir eru í hlutaskrá í lok arðsréttindadags. Meðfylgjandi tillaga að starfskjarastefnu var samþykkt Sjá viðhengi Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna Samþykkt var að þóknun til stjórnarmanna vegna næsta árs verði 285.000 kr. á mánuði, varaformaður fái einn og hálfan hlut og formaður fái tvöfaldan hlut. Kjör stjórnar Í stjórn voru kjörin: Anna G. Sverrisdóttir, Eggert Benedikt Guðmundsson, Guðmundur Kristjánsson, Magnús M.S. Gústafsson og Rannveig Rist Kosning endurskoðanda Samþykkt var að endurskoðandi félagsins fyrir árið 2018 verði Deloitte ehf.
|