Icelandic
Birt: 2018-04-17 16:35:05 CEST
Eik fasteignafélag hf.
Fjárhagsdagatal

Eik fasteignafélag hf.: Breytt fjárhagsdagatal og birting fyrsta ársfjórðungs 2018

Breytt fjárhagsdagatal

Eik fasteignafélag hefur breytt fjárhagsdagatali fyrir birtingu á uppgjöri fyrsta og annars ársfjórðungs. Félagið mun birta uppgjör á eftirfarandi dögum:

1. ársfjórðungur:   25. apríl 2018
2. ársfjórðungur:   30. ágúst 2018
3. ársfjórðungur:   31. október 2018
4. ársfjórðungur:   28. febrúar 2019

Birting fyrsta ársfjórðungs 2018 þann 25. apríl og kynningarfundur þann 26. apríl

Eik fasteignafélag hf. mun birta uppgjör fyrsta ársfjórðungs fyrir árið 2018 eftir lokun markaða miðvikudaginn 25. apríl n.k.

Opinn kynningarfundur verður haldinn 26. apríl n.k., klukkan 8:30 á Hóteli 1919 í fundarherberginu Goðafoss, Pósthússtræti 2. Boðið verður upp á léttan morgunmat frá kl. 8:00.

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar, mun kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu ásamt Lýð H. Gunnarssyni, framkvæmdastjóra fjármálasviðs.

Nánari upplýsingar veitir Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is s. 590-2200 / 820-8980.