Icelandic
Birt: 2018-04-13 16:24:55 CEST
Kvika banki hf
Breytingar á hlutafé og vægi atkvæða

Kvika banki hf.: Tilkynning um nýtingu áskriftarréttinda

Stjórn Kviku banka hf. (Kvika) barst í dag, 13. apríl 2018, tilkynning frá eiganda áskriftarréttinda að hlutum í félaginu að nafnvirði kr. 9.978.678 um nýtingu réttindanna á genginu 4,13.

Með vísan til samnings um útgáfu áskriftarréttindanna skal stjórn Kviku taka ákvörðun um hækkun hlutafjár til að mæta skuldbindingum samkvæmt áskriftarréttindunum innan 30 daga frá því að tilkynning um nýtingu áskriftarréttinda samkvæmt berst henni og grípa til allra annarra ráðstafana sem nauðsynlegar eru til að tryggja skráningu rétthafa sem hluthafa í Kviku, þar með talið að gefa út hlutafé, skrá rétthafa í hlutaskrá og tryggja skráningu hans sem rétthafa í verðbréfamiðstöð, sbr. lög nr. 131/1997 um rafræna eignaskráningu verðbréfa.

Samkvæmt bráðabirgðaákvæði III í samþykktum Kviku er stjórn heimilt að hækka hlutafé félagsins um allt að kr. 88.571.426 að nafnvirði í þeim tilgangi að uppfylla skyldur félagsins samkvæmt þegar útgefnum áskriftarréttindum samkvæmt bráðabirgðaákvæði III. Frestur til notkunar á heimildinni er til 31. desember 2019. Hluthafar hafa ekki forgangsrétt að nýjum hlutum útgefnum á grundvelli heimildar í bráðabirgðaákvæði III. Stjórn hefur þegar nýtt sér heimild skv. framangreindu ákvæði til að gefa út hluti að nafnvirði kr. 19.957.356.

Að lokinni útgáfu nýrra hluta til að mæta framkominni tilkynningu um nýtingu áskriftarréttinda mun heildarhlutafé Kviku vera kr. 1.844.996.308 að nafnvirði og eftirstæð heimild stjórnar til að gefa út nýja hluti skv. bráðabirgðaákvæði III í samþykktum félagsins kr. 58.635.392 að nafnvirði.