Icelandic
Birt: 2018-04-13 16:20:16 CEST
Reginn hf.
Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hluta

Reginn hf. – Hækkun á hlutafé

Í samræmi við 84. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, tilkynning Reginn hf. að félagið hefur aukið hlutafé sitt um 50.411.637 krónur að nafnvirði. Heimild hluthafafundar var frá 14. mars 2018 og ákvað stjórn Regins að nýta þá heimild 12. apríl 2018 sbr. fréttatilkynningu í Kauphöll Íslands sem var send samdægurs. Hlutafjáraukningin var skráð hjá Fyrirtækjaskrá og Verðbréfamiðstöð Íslands hf. 13. apríl 2018 og tók gildi í kerfum Nasdaq Iceland hf. þann 13. apríl 2018. Lögbundinn forgangsréttur hluthafa gilti ekki um hið nýja hlutafé.

Hlutafé í Regin fyrir hlutafjáraukningina var 1.555.300.000 að nafnvirði og er að henni lokinni 1.605.711.637 krónur að nafnvirði. Reginn á ekki eigin hluti. Hinir nýju hlutir veita réttindi í Regin frá skráningardegi hlutafjárhækkunarinnar hjá Verðbréfamiðstöð Íslands.

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262