Reginn hf. – Hlutafjáraukning og nýting kaupréttar
Stjórn Regins ákvað á fundi sínum þann 12. apríl 2018 að nýta hluta heimildar í 4. gr. samþykkta félagsins sem samþykkt var á hluthafafundi Regins 14. mars 2018 og hækka hlutafé í Regin um 50.411.637 hluti. Lögbundinn forgangsréttur hluthafa gildir ekki um hið nýja hlutafé. Hlutafjáraukningunni verður ráðstafað sem greiðslu vegna kaupa á 45% hlutafé í fasteignafélaginu FM-hús ehf. í samræmi við kauprétt samkvæmt hluthafasamkomulagi, dags. 17. ágúst 2017. Hlutafé í Regin fyrir hlutafjáraukninguna er 1.555.300.000 krónur að nafnvirði og verður að henni lokinni 1.605.711.637 krónur að nafnvirði. Reginn á ekki eigin hluti. Hinir nýju hlutir veita réttindi í Regin frá skráningardegi hlutafjárhækkunarinnar hjá Fyrirtækjaskrá. Hinir nýju hlutir verða afhentir eigendum fasteignafélagsins FM-hús ehf. sem eru þrír talsins. Af þessum aðilum fer einn hluthafi Benedikt Rúnar Steingrímsson inn á lista yfir 20 stærstu hluthafa í Regin með 1,57% eignarhlut. Eftirfarandi er listi yfir 20 stærstu hluthafa í Regin eftir hlutafjáraukninguna:
Nr. | Nafn | Hlutir | % | 1 | Lífeyrissjóður verslunarmanna | 200.388.362 | 12,48% | 2 | Gildi - lífeyrissjóður | 114.180.738 | 7,11% | 3 | Sigla ehf. | 100.000.000 | 6,23% | 4 | Stapi lífeyrissjóður | 80.219.956 | 5,00% | 5 | Birta lífeyrissjóður | 79.644.516 | 4,96% | 6 | Lífeyrissj.starfsm.rík. A-deild | 68.300.000 | 4,25% | 7 | Global Macro Absolute Return Ad | 56.412.638 | 3,51% | 8 | Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda | 47.895.072 | 2,98% | 9 | Lífsverk lífeyrissjóður | 47.595.857 | 2,96% | 10 | Frjálsi lífeyrissjóðurinn | 38.977.492 | 2,43% | 11 | Landsbréf - Úrvalsbréf | 36.501.425 | 2,27% | 12 | Arion banki hf. | 34.209.233 | 2,13% | 13 | Sjóvá-Almennar tryggingar hf. | 33.437.221 | 2,08% | 14 | Vátryggingafélag Íslands hf. | 32.642.346 | 2,03% | 15 | Brimgarðar ehf. | 32.000.000 | 1,99% | 16 | Stefnir - Samval | 31.718.539 | 1,98% | 17 | Global Macro Portfolio | 29.010.300 | 1,81% | 18 | Lífeyrissj.starfsm.rík. B-deild | 25.379.500 | 1,58% | 19 | Benedikt Rúnar Steingrímsson | 25.205.818 | 1,57% | 20 | IS Hlutabréfasjóðurinn | 24.240.087 | 1,51% | | 20 Stærstu hluthafar í Reginn samtals | 1.137.959.100 | 70,87% | | Aðrir hluthafar | 467.752.537 | 29,13% | | Samtals | 1.605.711.637 | 100% |
Nánari upplýsingar veitir: Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262
|