Icelandic
Birt: 2018-02-28 18:30:01 CET
Brim hf.
Reikningsskil

Afkoma HB Granda hf. árið 2017

Fjórði ársfjórðungur

Rekstrartekjur samstæðunnar á fjórða ársfjórðungi 2017 voru 58,4 m€, á móti 48,7 m€ á fjórða ársfjórðungi 2016. 

EBITDA nam 3,4 m€ á fjórða ársfjórðungi í ár, en nam 4,1 m€ á sama tímabili 2016. 

Hagnaður á fjórða ársfjórðungi var 7,5 m€ samanborið við 1,1 m€ árið áður.

Árið 2017

Rekstrartekjur ársins 2017 námu 217,3 m€, en voru 201,2 m€ árið 2016.

EBITDA ársins 2017 var 35,7 m€ (16,4%) en var 44,3 m€ (22,0%) árið áður.

Hagnaður ársins var 24,8 m€, en var 26,2 m€ árið áður.

Hagnaður á hlut var 0,014 sem er sama fjárhæð og árið áður.

Rekstur ársins 2017

Rekstrartekjur HB Granda hf. árið 2017 námu 217,3 m€, samanborið við 201,2 m€ árið áður.  Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 35,7 m€ eða 16,4% af rekstrartekjum, en var 44,3 m€ eða 22,0% árið áður.  Áhrif fjáreignatekna og fjármagnsgjalda voru neikvæð um 5,2 m€, en voru neikvæð um 2,4 m€ árið áður.  Áhrif hlutdeildarfélaga voru jákvæð um 5,0 m€, en voru jákvæð um 4,5 m€ árið áður.  Hagnaður fyrir tekjuskatt var 29,4 m€, samanborið við hagnað að fjárhæð 31,4 m€ árið áður.  Tekjuskattur að fjárhæð 4,6 m€ er reiknaður samkvæmt framtali í íslenskum krónum.  Hagnaður ársins varð því 24,8 m€ en var 26,2 m€  árið áður. 

Meðalfjöldi ársverka árið 2017 var 839 en var 859 árið 2016.  Laun og launatengd gjöld námu samtals 73,9 m€, samanborið við 70,0 m€ árið áður (8,9 milljarðar króna á meðalgengi ársins samanborið við 9,3 milljarða árið áður).

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 498,1 m€ í árslok 2017. Þar af voru fastafjármunir 415,7 m€ og veltufjármunir 82,4 m€.  Eigið fé nam 257,2 m€ og var eiginfjárhlutfall 52%, en var 56% í lok árs 2016. Heildarskuldir félagsins voru í árslok 2017 240,9 m€.

Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri nam 28,9 m€ árið 2017, en var 25,0 m€ árið áður.  Fjárfestingar námu 46,1 m€.  Fjármögnunarhreyfingar voru jákvæðar um 27,5 m€.  Handbært fé hækkaði því um 10,3 m€ og var í árslok 17,6 m€.

Meginniðurstöður færðar til íslenskra króna

Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi ársins 2017 (1 evra = 120,2 ísk) verða tekjur 26,1 milljarðar króna, EBITDA 4,3 milljarðar og hagnaður 3,0 milljarðar.  Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á lokagengi ársins 2017 (1 evra = 124,7 ísk) verða eignir samtals 62,1 milljarðar króna, skuldir 30,0 milljarðar og eigið fé 32,1 milljarðar.

Skipastóll og afli

HB Grandi hf. gerði út 8 fiskiskip í árslok.  Félagið hefur nú fengið alla þrjá ísfisktogarana afhenta, en Engey var tilbúin til veiða um mitt ár, Akurey í febrúar 2018 og unnið er að því að koma fyrir vinnslu og lestarbúnaði í Viðey.  

Árið 2017 var afli skipa félagsins 44 þúsund tonn af botnfiski og 109 þúsund tonn af uppsjávarfiski.

Önnur mál

Verkfall sjómanna setti verulegan svip á rekstur félagsins í upphafi árs en það stóð yfir frá miðjum desember 2016 til 20. febrúar 2017.

Í maí var tekin ákvörðun um að leggja af botnfiskvinnslu félagsins á Akranesi.  Botnfiskvinnsla á Akranesi sameinaðist botnfiskvinnslu félagsins í Reykjavík þann 1. september 2017.

Þann 2. júní 2017 var skrifað undir samning vegna smíði á 81,30 metra löngum og 17,00 metra breiðum frystitogara  við spænsku skipasmíðastöðina Astilleros Armon Gijon.  Afhending togarans er áætluð um mitt ár 2019.

Félagið seldi Þerney RE-1 á árinu og var hún afhent nýjum eigendum í desember 2017.  Við söluna fækkaði skipum félagsins í rekstri um eitt.

Í árslok keypti félagið 33% eignarhlut í fiskþurrkunarfyrirtækinu Laugafiski ehf. (áður Háteigur ehf.)

Aðalfundur

Aðalfundur HB Granda verður haldinn föstudaginn 4. maí í matsal félagsins við Norðurgarð í Reykjavík og hefst klukkan 17:00.

Tillaga stjórnar á aðalfundi um arðgreiðslu

Stjórn félagsins leggur til að á árinu 2018 verði vegna rekstrarársins 2017 greiddar 0,7 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 1.270 millj. kr. (um 10,2 millj. evra á lokagengi ársins 2017), eða 2,0% af markaðsvirði hlutafjár í lok árs 2017.  Arðurinn verði greiddur 31. maí 2018.  Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 4. maí 2018 og arðleysisdagur því  7. maí 2018.

Arðsréttindadagur er 8. maí 2018.  Arður greiðist þeim sem skráðir eru í hlutaskrá félagsins í lok arðsréttindadags.

Kynningarfundur þann 1. mars 2018

Opinn kynningarfundur um afkomu félagsins á fjórða ársfjórðungi verður haldinn á morgun  fimmtudaginn 1. mars klukkan 08:30 í höfuðstöðvum félagsins að Norðurgarði 1. Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri mun kynna uppgjörið og svara spurningum.

Samþykkt ársreiknings

Ársreikningurinn var samþykktur á stjórnarfundi HB Granda hf. 28. febrúar 2018.  Ársreikningurinn er í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS – International Financial Reporting Standards) og hefur verið endurskoðaður af endurskoðendum félagsins.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri, sími 858-1007.

Fjárhagsdagatal

Aðalfundur/Birting ársskýrslu     4. maí 2018

Arðgreiðsludagur                      31. maí 2018

Fyrsti ársfjórðungur                   30. maí 2018

Annar ársfjórðungur                  29. ágúst 2018

Þriðji ársfjórðungur                    28. nóvember 2018

Fjórði ársfjórðungur                   27. febrúar 2019


     


Afkoma HB Granda hf 2017.pdf
Arsreikningur HB Granda 2017.pdf