Icelandic
Birt: 2018-02-26 20:07:03 CET
Eik fasteignafélag hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Eik fasteignafélag hf.: Kynningarfundur á uppgjöri ársins og rekstraráætlun 2018

Eik fasteignafélag hf. verður með opinn kynningarfund á morgun, 27. febrúar, þar sem ársuppgjör félagsins verður kynnt ásamt því að farið verður yfir rekstraráætlun fyrir árið 2018.

Fundurinn verður haldinn klukkan 12:00 í húsnæði félagsins við Borgartún 26, 7. hæð. Boðið verður upp á léttan hádegismat frá kl. 11:30.

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar, mun kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu ásamt Lýð H. Gunnarssyni, framkvæmdastjóra fjármálasviðs.

Nánari upplýsingar veitir Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is s. 590-2200 / 820-8980.