Icelandic
Birt: 2018-02-26 18:14:20 CET
Eik fasteignafélag hf.
Ársreikningur

Eik fasteignafélag hf.: Ársreikningur Eikar fasteignafélags hf. 2017

  • Rekstrartekjur ársins námu 7.616 m.kr.
  • Leigutekjur ársins námu 6.320 m.kr. samanborið við 5.651 m.kr. árið 2016.
  • Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 4.970 m.kr.
  • Heildarhagnaður ársins nam 3.797 m.kr.
  • Handbært fé frá rekstri nam 2.617 m.kr. á árinu.
  • Bókfært virði fjárfestingareigna nam 85.033 m.kr.
  • Eignir til eigin nota námu 3.751 m.kr.
  • Matsbreyting var jákvæð á árinu um 3.103 m.kr.
  • Vaxtaberandi skuldir námu 54.831 m.kr. í árslok.
  • Eiginfjárhlutfall nam 32,1%.
  • Hagnaður á hlut var 1,07.
  • Virðisútleiguhlutfall var 95,3% í lok árs.
  • Stjórn leggur til að greiddur verði út 915 m.kr. arður, 0,26 kr. á hlut.

Ársreikningur Eikar fasteignafélags var samþykktur af stjórn félagsins í dag, 26. febrúar 2018.

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri:

"Rekstur Eikar fasteignafélags gekk vel á árinu 2017 og var í takt við áætlanir félagsins. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingar og afskriftir var 4.970 m.kr. og heildarhagnaður félagsins var 3.797 m.kr.

Félagið hélt áfram í miklum framkvæmdum á árinu. Framkvæmdir við Suðurlandsbraut 8 kláruðust og Vodafone opnaði höfuðstöðvar sínar í húsinu á haustmánuðum. Bílastæðahúsið við Suðurlandsbraut 8 & 10 hefur verið tekið í notkun og þá er Suðurlandsbraut 10 orðin fokheld. Finnur félagið fyrir miklum áhuga á skrifstofuhæðunum í húsinu. Mikill uppgangur hefur verið á 2.hæð á Glerártorgi og er nú öll hæðin komin í útleigu undir læknastarfsemi en í byrjun árs 2016 var öll hæðin fokheld og óútleigð. Læknastofur Akureyrar, Tannlæknastofur Akureyrar og Blóðbankinn hafa öll hafið starfsemi á Glerártorgi og þykja framkvæmdirnar hafa heppnast einstaklega vel.

Ánægjulegt var að sjá áhuga fjárfesta á skuldabréfaútboði sem félagið hélt í október síðastliðnum. Uppboðið var haldið samhliða uppgreiðslu á EIK 12 01 og seldi félagið 9,9 ma.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,6%."

Félagið hefur gefið út ársskýrslu félagsins, sem hefur að geyma ítarlegar upplýsingar um félagið og rekstur þess á árinu 2017 ásamt ársreikningi. Skýrslan er meðfylgjandi þessari tilkynningu og má einnig finna á heimasíðu félagsins, www.eik.is.

Ársreikningur Eikar fasteignafélags hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Endurskoðendur félagsins, KPMG ehf., hafa endurskoðað reikninginn og áritað hann fyrirvaralaust.

Tillaga um arðgreiðslu

Félagið hefur sett sér arðgreiðslustefnu um að greiða árlega út arð sem nemur um 35% af handbæru fé frá rekstri hvers árs. Í samræmi við stefnuna leggur stjórn félagsins til við aðalfund, sem haldinn verður 22. mars n.k., að greiddur verði út 915 m.kr. (0,26 kr. á hlut) arður til hluthafa á árinu 2018 vegna rekstrarársins 2017.

Horfur

Félagið hefur gefið út ítarlega rekstraráætlun fyrir árið 2018 sem finna má í meðfylgjandi ársskýrslu félagsins og á heimasíðu þess, www.eik.is.

Nýtt skipurit

Stjórn félagsins hefur samþykkt breytingu á skipuriti félagsins. Tvö ný svið koma inn í samstæðu félagsins, þ.e. húsumhyggja og viðskiptaþróun. Húsumhyggja mun sjá um dagleg samskipti við leigutaka, rekstur sameigna og húsumsjón. Jón Gretar Jónsson er framkvæmdastjóri sviðsins en hann var framkvæmdastjóri Eikar rekstrarfélags ehf. Garðar Hannes Friðjónsson mun taka við sem framkvæmdastjóri þess félags.Viðskiptaþróun mun sjá um nýja tekjuöflun með það að markmiði að nýta betur það sem eignasafnið hefur upp á að bjóða. Ekki hefur verið ráðið í starf framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar.

Eignasafn félagsins

Fasteignirnar innan samstæðunnar eru rúmlega 100 talsins og telja tæplega 300 þúsund útleigufermetra í 600 leigueiningum og eru leigutakarnir á fimmta hundrað. Helstu fasteignir félagsins eru Borgartún 21 og 26, Suðurlandsbraut 8, Mýrargata 2-16, Pósthússtræti 2, Álfheimar 74 (Nýi Glæsibær) og Austurstræti 5,6,7 og 17 í Reykjavík, Smáratorg 1 og 3 í Kópavogi og Glerártorg á Akureyri.

Stærsti eignaflokkur félagsins er skrifstofuhúsnæði sem er 45% af virði alls fasteignasafnsins. Annar stærsti eignaflokkurinn er verslunarhúsnæði, eða 25% safnsins. Þriðji stærsti eignarflokkurinn er hótel, eða 12% safnsins. Lagerhúsnæði er 11% safnsins og annað húsnæði 7%.

Félagið fékk allar eignir Slippsins, fasteignafélags ehf. (nú EF14 ehf.) afhentar 1. mars 2017. Þá keypti félagið í Hyrjarhöfða 8, Miðhraun 2 og hæð í Síðumúla 15 á árinu. Eik hefur síðan selt eignarhlut sinn í Melgerði 13, sem var eina eign félagsins á Reyðarfirði ásamt því að selja Hverafold 1-3 og hluta af eignarhluta sínum í Bæjarlind 14-16.

Á nýju ári hefur félagið keypt og fengið afhent Vatnagarða 22 og skrifað undir kauptilboð um sölu á eign sinni við Ármúla 13a.

Fjárhagsdagatal 2018

Stefnt er að birtingu árshluta- og ársuppgjöra á neðangreindum dagsetningum:

Aðalfundur                                                     22. mars 2018

Árshlutauppgjör 1. ársfjórðungs 2018           26. apríl 2018

Árshlutauppgjör 2. ársfjórðungs 2018           31. ágúst 2018

Árshlutauppgjör 3. ársfjórðungs 2018           31. október 2018

Ársuppgjör 2018                                            28. febrúar 2019

Birtingar fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaða.

Meðfylgjandi er ársskýrsla 2017 sem inniheldur ársreikning 2017.

Nánari upplýsingar veita:
Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is, s. 590-2200
Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is s. 590-2200 / 820 8980


Arsskyrsla 2017.pdf