Icelandic
Birt: 2018-02-19 16:39:43 CET
Eik fasteignafélag hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Eik fasteignafélag hf.: Birting uppgjörs fjórða ársfjórðungs 2017 þann 26. febrúar- Kynningarfundur í hádeginu 27. febrúar

Eik fasteignafélag hf. mun birta uppgjör fjórða ársfjórðungs fyrir árið 2017 eftir lokun markaða mánudaginn 26. febrúar n.k.

Opinn kynningarfundur verður haldinn í hádeginu, 27. febrúar n.k., klukkan 12:00 í húsnæði félagsins við Borgartún 26, 7. hæð. Boðið verður upp á léttan hádegismat frá kl. 11:30.

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar, mun kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu ásamt Lýð H. Gunnarssyni, framkvæmdastjóra fjármálasviðs.

Nánari upplýsingar veitir Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is s. 590-2200 / 820-8980.