Icelandic
Birt: 2018-02-12 10:38:24 CET
Hagar hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup Haga á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 6. viku 2018 keyptu Hagar hf. 1.477.592 eigin hluti fyrir kr. 59.400.639 eins og hér segir:

 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir Haga eftir viðskipti
5.2.2018 13:23 290.000 40,60 11.774.000 65.001.469
6.2.2018 10:30 1.181.592 40,10 47.381.839 66.183.061
8.2.2018 14:19 6.000 40,80 244.800 66.189.061
Samtals   1.477.592   59.400.639  
           

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 28. nóvember 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 27. nóvember 2017.

Hagar hafa nú keypt samtals 22.020.712 hluti í félaginu sem samsvarar 88,08% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 834.027.471 sem samsvarar 83,40% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Hagar eiga nú samtals 66.189.061 eigin hluti, eða 5,65% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.171.502.190.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 25.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.000 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 6. júní 2018 eða fram að aðalfundi félagsins 2018, nema ef skilyrði um hámarkskaup verða uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.