Icelandic
Birt: 2018-02-06 16:10:22 CET
Reginn hf.
Fjárhagsdagatal

Reginn hf. birtir ársuppgjör 2017, þriðjudaginn 13. febrúar 2018

Reginn hf. mun birta samþykkt ársuppgjör 2017, eftir lokun markaða þriðjudaginn 13. febrúar 2018.

Af því tilefni býður Reginn hf. til opins kynningarfundar miðvikudaginn 14. febrúar nk. kl. 8:30 í nýbyggingu félagsins við Hafnartorg í miðbæ Reykjavíkur. Gengið er inn frá Pósthússtræti gegnt inngangi að Kolaporti.

Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:

https://livestream.com/accounts/11153656/events/8046107/player

Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins, kynnir uppgjörið og svarar spurningum að lokinni kynningu. Einnig verður farið yfir ársskýrslu félagsins, áherslur í rekstri og rekstrarspá fyrir árið 2018.

Boðið verður upp á morgunverð.

Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið fjarfestatengsl@reginn.is

 

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262