Icelandic
Birt: 2018-01-22 11:58:15 CET
Síminn hf.
Fjárhagsdagatal

Síminn hf. - Ársuppgjör 2017 verður birt eftir lokun markaðar 19. febrúar 2018

Kynningarfundur verður haldinn 20. febrúar kl. 8:30

Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung 2017 og ársuppgjör 2017 eftir lokun markaðar þann 19. febrúar næstkomandi. Vakin er athygli á því að uppgjörið verður birt tveimur viðskiptadögum síðar en áætlað var samkvæmt uppgjörsdagatali sem birt var í  fréttakerfi Kauphallar þann 21. desember 2017.

Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn þriðjudaginn 20. febrúar 2018 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 8:30.

Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans https://www.siminn.is/forsida/siminn/fjarfestar/fjarhagsupplysingar/uppgjor og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

Hægt verður að fylgjast með netstreymi af fundinum á vefslóðinni: https://livestream.com/accounts/11153656/events/8021782/player

Nánari upplýsingar veitir Ásta Nína Benediktsdóttir fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is