English Icelandic
Birt: 2017-12-11 16:31:00 CET
Lánamál ríkisins
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Útboð ríkisvíxla RIKV 18 0615

Miðvikudaginn 13. desember kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokknum RIKV 18 0615 sem er með gjalddaga 15. júní 2018. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er föstudagurinn 15. desember 2017. 

Sótt verður um að RIKV 18 0615 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ á Íslandi föstudaginn 15. desember 2017. 

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9635.


Frett RIKV 11.des.2017.pdf
Utbosskilmalar RIKV 13. des.2017.pdf