Icelandic
Birt: 2017-11-01 12:13:02 CET
Nasdaq Nordic
Fjárfestatilkynningar

Viðskiptayfirlit október 2017 – Nasdaq Iceland

Reykjavík, 1. nóvember, 2017 -- Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.  Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir október 2017 eru eftirfarandi:   

Hlutabréf:

·         Heildarviðskipti með hlutabréf í október námu 55.420 milljónum eða 2.519 milljónum á dag. Það er 13% hækkun frá fyrri mánuði, en í september námu viðskipti með hlutabréf 2.229 milljónum á dag.  Þetta er 6% lækkun á milli ára (viðskipti í október 2016 námu 2.684 milljónum á dag).

·         Mest voru viðskipti með bréf Marel (MARL), 7.897 milljónir, Icelandair Group (ICEAIR), 6.800 milljónir, Símans (SIMINN), 5.853 milljónir, N1 (N1), 4.712 milljónir, og Reita fasteignafélags (REITIR), 3.771 milljón.

·         Úrvalsvísitalan (OMXI8) hækkaði um 2,3% á milli mánaða og stendur nú í 1.690 stigum.

·         Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Arion banki  með mestu hlutdeildina, 23,2% (24,7% á árinu), Fossar markaðir með 20,2% (14,4% á árinu), og Landsbankinn með 17,2% (20,4% á árinu).

·         Í lok október voru hlutabréf 21 félags skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First North á Íslandi.  Nemur heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 1.029 milljörðum króna (samanborið við 1.010 milljarða í september).

Skuldabréf:

·         Heildarviðskipti með skuldabréf námu 85,9 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 3,9 milljarða veltu á dag. Þetta er 24% lækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í september námu 5,1 milljarði á dag), og 27% lækkun frá fyrra ári (viðskipti í október 2016 námu 5,3 milljörðum á dag).

·         Alls námu viðskipti með ríkisbréf 63,9 milljörðum, viðskipti með bankabréf námu 15,0 milljörðum, og viðskipti með íbúðabréf námu 2,9 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKB 25 0612, 12,4 milljarðar, RIKB 28 1115, 11,1 milljarður, RIKB 20 0205, 10,8 milljarðar, RIKB 31 0124, 9,9 milljarðar og RIKB 22 1026, 9,5 milljarðar.

·         Á skuldabréfamarkaði var Landsbankinn með mestu hlutdeildina 19,0% (17,6% á árinu), Kvika banki með 17,9% (15,5% á árinu), og Íslandsbanki með 16,6% (17,4% á árinu).

·         Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 1,8% í október og stendur í 1.345 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) hækkaði um 1,8% og sú verðtryggða (NOMXIREAL) hækkaði um 1,7%.                                

Sjá myndir í viðhengi (excel) fyrir hlutdeild kauphallaraðila á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði.

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics

#

 

Um Nasdaq

Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi á alþjóðavísu í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 90 mörkuðum í 50 löndum og knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,900 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 12 billjón Bandaríkjadala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/

 

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

 

Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm. 

         Fjölmiðlar:
         Kristín Jóhannsdóttir
         kristin.johannsdottir@nasdaq.com
         868 9836


2017_1101_Viskiptayfirlit fyrir oktober 2017_final.pdf
Hlutd myndir 201710.xlsx