English Icelandic
Birt: 2017-10-31 16:55:58 CET
Sýn hf.
Reikningsskil

Fjarskipti hf. : Reglugerðarbreyting í reiki hefur áhrif á afkomu fjórðungsins

Árshlutareikningur Fjarskipta hf. fyrir þriðja ársfjórðung 2017 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 31. október 2017.

  • Tekjur námu 3.437 m.kr. og standa í stað samanborið við þriðja ársfjórðung 2016
  • Framlegð 1.550 m.kr., lækkun um 6% miðað við sama tímabil 2016
  • EBITDA hagnaður nam 853 m.kr., lækkar um 8% milli ára
  • EBITDA hlutfall 24,8% og EBIT hlutfall 13,3% á fjórðungnum
  • Hagnaður tímabilsins nam 290 m.kr.
  • Eiginfjárhlutfall í lok tímabilsins nam 50,4%

Stefán Sigurðsson, forstjóri:

"Rekstur þriðja fjórðungs einkenndist af áhrifum af reglugerðarbreytingu í reiki, Roam like home, sem hafði umtalsvert neikvæð áhrif á farsímatekjur félagsins borið saman við sama tímabil 2016. Áhrif reglugerðarbreytingarinnar skýrir þannig alla lækkun EBITDA á tímabilinu og rúmlega það miðað við sama tímabil 2016. Áhrif breytingarinnar gæta mest á þriðja fjórðungi sem hefur verið lang stærsti reikifjórðungur vegna ferðalaga viðskiptavina og munu áhrifin vera hlutfallslega minni á öðrum fjórðungum auk þess sem mótvægisaðgerðir munu hafa áhrif til dæmis á næsta fjórðungi og á árinu 2018. Ágætis gangur var í sjónvarpstekjum félagsins á fjórðungnum með áframhaldandi vexti á milli ára og hefur vöxtur í sjónvarpstekjum verið viðvarandi á milli fjórðunga síðustu árin. Rekstrarkostnaður á þriðja fjórðungi stendur nánast í stað þrátt fyrir kjarasamningsbundnar hækkanir á launum og launatengdum gjöldum. Dregið hefur úr lækkun í launa- og starfsmannakostnaði samanborið við þriðja fjórðung 2016 þar sem ráðist var í hagræðingaaðgerðir á fyrri helmingi árs 2016, húsnæðiskostnaður er aftur á móti að skila nokkurri lækkun á milli tímabila.

Það var stór áfangi á fjórðungnum þegar sátt náðist við Samkeppniseftirlitið um kaup á fjölmiðla- og fjarskiptahluta 365 að undanskildu Fréttablaðinu og Glamour með skilyrðum. Í sáttinni felst að Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Fjarskipta hf. á tilteknum eignum og rekstri 365 miðla hf. gegn skilyrðum, meðal annars að ráðast í aðgerðir til þess að tryggja samkeppni á fjarskipta- og fjölmiðlamarkaði og fjölbreytni á fjölmiðlamarkaði. Nú er mikil vinna í gangi við að leggja lokahönd á samrunann og fara í gegnum hefðbundna fyrirvara í kaupsamningi. Markmiðið er að afhending geti farið fram þann 1. desember 2017. Félagið stendur við fyrri áætlanir sem kynntar hafa verið í tengslum við samrunann um 1.750 m.kr. aukinn EBITDA-hagnað sem bætist við rekstur Vodafone á 12-18 mánuðum. Full áhrif samrunans taka því að gæta árið 2019 eða 2020, eftir því hversu hratt gengur að ná fullri samlegð. Við teljum raunhæft að sameinað félag verði með yfir 5 ma.kr. EBITDA hagnað þegar samlegð er að fullu komin fram." 


Fjarskipti hf. Arshlutareikningur 3F 2017.pdf
Fjarskipti hf. Frettatilkynning 3F 2017.pdf