Icelandic
Birt: 2017-10-31 11:53:41 CET
Eik fasteignafélag hf.
Fjárhagsdagatal

Eik fasteignafélag hf.: Birting uppgjörs 3. ársfjórðungs 2017 fyrir opnun markaða 8. nóvember - Kynningarfundur í hádeginu 8. nóvember

Eik fasteignafélag hf. mun birta uppgjör 3. ársfjórðungs fyrir árið 2017 fyrir opnun markaða miðvikudaginn 8. nóvember 2017. Vakin er athygli á breyttri tímasetningu en áður hefur verið sagt að birting muni fara fram eftir lokun markaða 8. nóvember.

Opinn kynningarfundur verður haldinn í hádeginu sama dag, 8. nóvember 2017, klukkan 12:00 á Hóteli 1919 í fundarherberginu Goðafoss, Pósthússtræti 2. Boðið verður upp á léttan hádegismat frá kl. 11:30.

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar, mun kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu ásamt Lýð H. Gunnarssyni, framkvæmdastjóra fjármálasviðs.

Nánari upplýsingar veitir Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is s. 590-2200 / 820-8980.