HB Grandi kaupi Blámar
HB Grandi hefur gert samning um kaup á öllu hlutafé Blámars ehf. á 60 milljónir króna. Blámar hefur sérhæft sig í útflutningi á fiskafurðum í neytendapakkningum og eru kaupin liður í að styrkja markaðsstarf dótturfélaga HB Granda á Akranesi, Norðanfisks og Vignis G. Jónssonar.
|