Icelandic
Birt: 2017-10-25 17:37:48 CEST
Síminn hf.
Árshlutareikningur (Q1 og Q3)

Hagnaður Símans vex um 15% á fyrstu níu mánuðum ársins

Helstu niðurstöður í rekstri á þriðja ársfjórðungi 2017

  • Tekjur á þriðja ársfjórðungi 2017 námu 6.956 milljónum króna samanborið við 7.270 milljónir króna á sama tímabili 2016.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA nam 2.387 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi 2017 samanborið við 2.583 milljónir króna á sama tímabili 2016. EBITDA hlutfallið er 34,3% fyrir þriðja ársfjórðung 2017 en var 35,5% á sama tímabili 2016.
  • Hagnaður á þriðja ársfjórðungi 2017 nam 905 milljónum króna samanborið við 1.128 milljónir króna á sama tímabili 2016.
  • Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 2.618 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi 2017 en var 2.681 milljón króna á sama tímabili 2016. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 2.178 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi 2017 en nam 2.268 milljónum króna á sama tímabili 2016.
  • Vaxtaberandi skuldir námu 18,2 milljörðum króna í lok þriðja ársfjórðungs 2017 en voru 22,9 milljarðar króna í árslok 2016. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 17,9 milljarðar króna í lok þriðja ársfjórðungs 2017.
  • Hrein fjármagnsgjöld námu 315 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi 2017 en voru 269 milljónir króna á sama tímabili 2016. Fjármagnsgjöld námu 393 milljónum króna, fjármunatekjur voru 74 milljónir króna og gengishagnaður var 4 milljónir króna.
  • Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 59,2% í lok þriðja ársfjórðungs 2017 og eigið fé 36 milljarðar króna. 

Orri Hauksson, forstjóri:

Rekstur Símasamstæðunnar gengur vel í ár og er samkvæmt væntingum. EBITDA er rúmum hálfum milljarði hærri en fyrstu níu mánuðina í fyrra, þrátt fyrir samdrátt í reiki og verðlækkanir í smásölu. Viðskiptavinum með farsíma hefur fjölgað og kynntar hafa verið nýjungar sem lofa góðu inn í framtíðina. Samstarfsaðilar okkar hafa áttað sig hratt á tækifærunum í Síminn Pay, sjávarútvegurinn fagnar örygginu sem Líflínan býður þeim og vinsældir Sjónvarps Símans Premium vaxa stöðugt.

Síminn býður upp á hraðasta farsímanet landsins, sem óháðir aðilar hafa staðfest annað árið í röð og yfir helmingur heimila á höfuðborgarsvæðinu á nú kost á að tengjast ljósleiðara Mílu. Samstæðan nýtur afraksturs mikilla fjárfestinga í innviðum undanfarin misseri, sem nýtist viðskiptavinum hennar og hluthöfum til framtíðar. Fjárfestingar hafa náð hámarki og í kjölfarið mun sterkt fjárflæði frá rekstri samstæðunnar hægt og rólega nýtast beint til aukinnar fjármunamyndunar.

Efnahagsreikningurinn var einfaldaður í upphafi fjórðungsins með endurskipulagningu skulda og handbærs fjár. Samstæðan er nú með sveigjanlegri rekstur og efnahag en fyrr og þannig vel í stakk búin til að bregðast við samkeppni og nýta tækifæri til sóknar.“

 

Nánari upplýsingar um uppgjörið veita:

Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550-6003 (orri@siminn.is)

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans s. 550-6003 (oskarh@siminn.is)

 

 


Siminn 30.09.2017.pdf
Siminn - Afkomutilkynning 3F 2017.pdf
Siminn - Fjarfestakynning 3F 2017.pdf