Icelandic
Birt: 2017-10-23 11:00:00 CEST
Sjóvá-Almennar tryggingar hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í viku 42 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 2.038.764 eigin hluti að kaupverð 35.325.273 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
16.10.2017 13:24:45      38.132 17,45      665.403
17.10.2017 09:30:57 1.000.000 17,40 17.400.000
17.10.2017 15:29:35    980.000 17,25 16.905.000
18.10.2017 10:47:22        1.566 17,20        26.935
18.10.2017 15:04:16       19.066 17,20      327.935
Samtals    2.038.764   35.325.273
         

   

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 21. mars 2017.

Sjóvá átti 59.207.947 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 61.246.711 eigin hluti eða sem nemur 4,11% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 53.165.179 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 3,57% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 936.066.924 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 140.943.067 hlutum eða sem nemur 9,46% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 2.500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2018, en þó aldrei lengur en til 15. mars 2018, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“

 

Nánari upplýsingar veitir:

Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, s. 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is