Icelandic
Birt: 2017-10-16 17:42:36 CEST
Sýn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Fjarskipti hf. : Héraðsdómur fellir úr gildi skráningu Símans á orðmerkinu "tímaflakk".

Svo sem fram kom í tilkynningu Fjarskipta hf. til Kauphallar 12. mars 2015 barst félaginu um það leiti krafa frá Símanum um skaðabætur vegna meintrar ólögmætrar notkunar á vörumerkinu "tímaflakk". Krafan var að fjárhæð 400 milljónir króna. Í tilkynningunni kom fram að Fjarskipti hf. teldi ekki grundvöll fyrir kröfunni m.a. þar sem ágreiningurinn um skráningu Símans á vörumerkinu væri ekki til lykta leiddur fyrir dómstólum. Auk þess taldi Fjarskipti hf. fjárhæð bótakröfunnar í engu samræmi við málsatvik og dómafordæmi.

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur með dómi frá því í dag fellt úr gildi skráningu Einkaleyfastofunnar á orðmerkinu "tímaflakk", sem þýðir að öllum er frjálst að nota orðmerkið að vild.

Sjá nánar: https://domstolar.is/domar/domur/?id=6e2be711-7b17-49fc-a386-4247b2dfadc2