English Icelandic
Birt: 2017-09-12 11:00:37 CEST
Lánamál ríkisins
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

FJÁRLAGAFRUMVARP 2018

Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2018 er í dag lagt fram á Alþingi og er í samræmi við markmið fjármálaáætlunar fyrir árin 2018-2022, sem Alþingi samþykkti í júní. Fjárlagafrumvarpið fyrir 2018 er hið fimmta í röð þar sem gert er ráð fyrir hallalausum rekstri ríkissjóðs. Meginmarkmið þess er að varðveita þann góða árangur í efnahagsmálum sem náðst hefur á undanförnum misserum en útlit er fyrir að núverandi hagvaxtarskeið verði það lengsta frá upphafi mælinga. Staða efnahagsmála, fjármála ríkissjóðs og hins opinbera er að mörgu leyti öfundsverð í alþjóðlegum samanburði.

 

Sjá frekari upplýsingar í viðhengi


Frettatilkynning - Fjarlagafrumvarp 2018.pdf