Icelandic
Birt: 2017-08-31 15:00:00 CEST
Reykjavíkurborg
Reikningsskil

Reykjavíkurborg – Árshlutareikningur janúar – júní 2017

Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar - júní 2017 var afgreiddur í borgarráði í dag, fimmtudaginn 31. ágúst.

Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 3.633 mkr en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði jákvæð um 1.139 mkr á árinu. Niðurstaðan er því 2.494 mkr betri en gert var ráð fyrir.  Betri rekstrarniðurstaða skýrist einkum af hærri skatttekjum og framlögum Jöfnunarsjóðs, sem voru 900 mkr hærri en áætlun gerði ráð fyrir og hærri tekjum af sölu byggingarréttar og söluhagnaði fasteigna sem var 1.118 mkr umfram áætlun.  Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 3.577 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 1.348 mkr eða 2.229 mkr umfram áætlun.

Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A- og B-hluta, var jákvæð um 18.584 mkr en áætlanir gerðu ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 7.811 mkr.

Rekstrarniðurstaðan er því 10.773 mkr betri en gert var ráð fyrir.  Helstu ástæður fyrir betri afkomu má rekja til hærri tekjufærðra matsbreytinga fjárfestingaeigna Félagsbústaða hf., lægri fjármagnsgjalda samstæðunnar vegna gangvirðisbreytinga innbyggðra afleiða í raforkusamningum hjá Orkuveitu og lægri rekstrarkostnaðar en áætlun gerði ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 14.240 mkr sem er 4.450 mkr betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir.

Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í árslok 551.114 mkr, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 290.621 mkr og eigið fé var 260.493 mkr en þar af var hlutdeild meðeigenda 13.955 mkr.  Eiginfjárhlutfall samstæðunnar fer hækkandi og er nú 47,3% en var 45,8% um síðustu áramót.

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, sem heldur utan um rekstur fagsviða, Eignasjóð og Bílastæðasjóð.

Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru:  Orkuveita Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Slökkvilið höfuðborgar­svæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf.

 

 

Nánari upplýsingar veitir

Birgir Björn Sigurjónsson fjármálastjóri Reykjavíkurborgar sími 693-9321.

 


Reykjavikurborg arshlutareikn jan-juni 2017.pdf
Reykjavikurborg - Skyrsla Fjarmalaskrifstofu m. arshlutauppgjori januar-juni 2017.pdf