Icelandic
Birt: 2017-08-28 17:59:01 CEST
Skel fjárfestingafélag hf.
Árshlutareikningur - 6 mán.

Skeljungur: Árshlutauppgjör - annar ársfjórðungur 2017


Hagnaður eykst um 12,9% á öðrum ársfjórðungi, samanborið við sama tímabil árið 2016.

 

Helstu niðurstöður annars ársfjórðungs 2017

  • Hagnaður á hlut var 0,22 en var 0,17 á sama tímabili í fyrra.
  • Framlegð nam 1.945 m.kr. og lækkar um 4,4% frá öðrum ársfjórðungi 2016.
  • Rekstrarkostnaður lækkar um 149 m.kr. milli ára eða um 12%
  • EBITDA hagnaður nam 876 m.kr. sem er 4,7% aukning frá sama tímabili ársins 2016.
  • EBITDA framlegð var 45,0% miðað við 41,1% á sama tímabili í fyrra.
  • Hagnaður eftir skatta nam 473 m.kr. samanborið við 418 m.kr. sem er 12,9% aukning á milli ára.
  • Eigið fé þann 30.6. nam 7.781 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 37,2% í ársfjórðungslok.
  • Meðalgengi dönsku krónunnar var 15,5 íslenskar krónur, sem er 17,5% lækkun frá sama tímabili árið 2016.

 

Helstu niðurstöður fyrri árshelmings 2017

  • Hagnaður á hlut var 0,34 en var 0,23 á sama tímabili í fyrra.
  • EBITDA hagnaður nam 1.503 m.kr. sem er 5,3% aukning frá fyrri helmingi ársins 2016.
  • EBITDA framlegð var 41,7% miðað við 38,7% á sama tímabili í fyrra.
  • Rekstrarkostnaðarhlutfall var 59,7% samanborið við 63,2%.
  • Hagnaður tímabilsins 728 m.kr. og eykst um 10,4% á milli ára.
  • Uppreiknuð arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli var 20,5% samanborið við 17,7% yfir sama tímabil árið 2016.
  • Meðalgengi dönsku krónunnar var 15,8 íslenskar krónur, sem er 16,5% lækkun frá sama tímabili árið 2016.

 

Lykiltölur

  Q2 2017 Q2 2016 Var% 1H 2017 1H 2016 Var%
Framlegð 1.945 2.034 -4,4% 3.605 3.684 -2,1%
EBITDA 876 837 4,7% 1.503 1.427 5,3%
EBIT 687 666 3,2% 1.124 1.078 4,3%
Hagnaður 473 418 12,9% 728 659 10,4%
             
Launakostn./framlegð 26,7% 27,5%   27,6% 29,0%  
Sölu og dreif.kostn./framlegð 22,1% 25,3%   24,1% 26,0%  
Rekstrarkostnaður/framlegð 56,3% 61,2%   59,7% 63,2%  
Arðsemi eigin fjár       20,5% 17,7%  


Horfur fyrir árið 2017

Í afkomuspá félagsins er gert ráð fyrir stöðugu gengi gjaldmiðla og stöðugu olíuverði. Breytingar á gengi íslensku krónunnar munu áfram hafa áhrif á rekstrarniðurstöður félagsins, sér í lagi gagnvart dönsku krónunni, vegna erlends hluta starfseminnar.

Áður birt áætlun gerði ráð fyrir að EBITDA ársins yrði á bilinu 2.400-2.700 og að fjárfestingar yrðu á bilinu 750-850 m.kr. Þar sem afkoma félagsins hefur verið góð það sem af er ári og þar sem lengra er liðið á árið þá hefur félagið ákveðið að breyta afkomuspánni í EBITDA 2.550 - 2.750 m.kr. Ekki eru gerðar neinar breytingar á áætlunum um fjárfestingar ársins og bilið því áfram 750-850 m.kr.

 

Árshlutareikningur annars ársfjórðungs 2017

Árshlutareikningur Skeljungs hf. fyrir annan ársfjórðung 2017 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 28. ágúst 2017.

Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS).

Árshlutareikningurinn hefur verið kannaður af endurskoðendum félagsins.

 

Valgeir M. Baldursson, forstjóri Skeljungs:

"Annar fjórðungur ársins var róstusamur, með kraftmikilli innkomu Costco á markaðinn, samrunaþreifingum markaðsaðila og töluverðum sveiflum á olíuverði og íslensku krónunni. Áframhaldandi aukning hefur verið í seldum lítrum og er niðurstaða árfjórðungsins góð. Báðar rekstrareiningar eru að bæta sig á milli tímabila en styrking íslensku krónunnar hefur áhrif á færeyska hlutanum. Endurfjármögnunin, sem lauk í lok fyrsta ársfjórðungs, skilar sér í umtalsverðri lækkun vaxtakostnaðar á fjórðungnum, auk þess sem rekstrarkostnaður félagins er að lækka þrátt fyrir kjarasamningshækkanir sem og almennar kostnaðarhækkanir."

 

Kynningarfundur

Opinn kynningarfundur vegna annars árshlutauppgjörs félagsins verður haldinn á Nordica Hilton Reykjavík, fundarsal D, þriðjudaginn 29. ágúst 2017. Fundurinn hefst kl. 08:30 en boðið verður upp á léttar veitingar frá kl. 08:15. Þar munu stjórnendur félagsins fara yfir uppgjör og horfur.

Allt efni fundarins verður gert aðgengilegt fjárfestum á heimasíðu Skeljungs, www.skeljungur.is/fjarfestar, sem og á fréttasíðu Nasdaq Iceland. 

 
    

   

Fjárhagsdagatal 2017

Uppgjör 3F 2017 - 30. október 2017

                              Nánari upplýsingar veitir Valgeir M. Baldursson, forstjóri, s: 840-3022, tölvupóstfang: fjarfestar@skeljungur.is.

   


Arshlutareikningur Q2 2017.pdf