Icelandic
Birt: 2017-08-25 13:34:47 CEST
RARIK ohf.
Reikningsskil

Árshlutareikningur RARIK ohf fyrstu sex mánuði ársins 2017

Hagnaður af starfsemi RARIK nam 909 milljónum króna á fyrri helmingi ársins.

Rekstarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á fyrri hluta ársins 2017 var 1.067 milljónir króna. Rekstrartekjur lækkuðu um tæp 3% frá fyrra ári, en rekstrargjöld með afskriftum hækkuðu um rúm 6%. Lækkun rekstrartekna var meiri en gert var ráð fyrir í áætlunum, en  rekstrargjöld voru heldur hærri.

Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 252 milljónir króna á tímabilinu, samanborið við 446 milljónir króna fyrri hluta ársins 2016. Er það betri niðurstaða en gert var ráð fyrir í áætlunum. Stafar það bæði af minni verðbólgu en búist var við og einnig af styrkingu krónunnar á fyrri hluta ársins.

Áhrif hlutdeildarfélagsins Landsnets á rekstur voru jákvæð um 257 milljónir króna, samanborið við neikvæð áhrif um 75 milljónir króna á fyrri hluta síðasta árs.

Samkvæmt rekstrarreikningi var hagnaður á tímabilinu 909 milljónir króna.

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 1.975 milljónir króna eða 27,5% af veltu tímabilsins, samanborið við tæp 34% af veltu á sama tímabili árið áður.  Hreint veltufé frá rekstri var 1.951 milljón króna samanborið við 2.389 milljónir króna á sama tímabili árið 2016.

Heildareignir RARIK samkvæmt efnahagsreikningi 30. júní 2017 voru 57.010 milljónir króna og heildarskuldir námu 20.933 milljónum króna. Eigið fé var 36.077 milljónir króna og eiginfjárhlutfall 63,3%.

Horfur í rekstri RARIK á árinu 2017 eru góðar. Gert er ráð fyrir að afkoma fyrir fjármagnsliði á seinni hluta ársins verði í samræmi við áætlanir. Miðað við gengisþróun undanfarna mánuði og verðbólguspár næstu mánaða verður heildarafkoma fyrirtækisins því jákvæð á árinu 2017.

Árshlutareikningur RARIK ohf er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.

Helstu stærðir samstæðureiknings eru sýndar í meðfylgjandi viðhengi.

Árshlutareikningur RARIK 1. janúar til 30. júní 2017 var samþykktur á fundi stjórnar þann 25. ágúst 2017.

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK í síma 528-9000.

 


Arshlutareikningur RARIK jan- juni 2017.pdf
Frettatilkynning um afkomu RARIK ohf 300617.pdf