Icelandic
Birt: 2017-08-22 18:44:48 CEST
Byggðastofnun
Reikningsskil

Byggðastofnun - Árshlutauppgjör janúar - júní 2017

Árshlutareikningur Byggðastofnunar janúar-júní 2017

Árshlutareikningur Byggðastofnunar fyrir tímabilið janúar-júní 2017, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 22. ágúst 2017.

Tap tímabilsins nam 20,7 milljón króna.  Eiginfjárhlutfall í lok júní skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 23,06% en var 22,74% í lok árs 2016.

Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr. 347/2000. Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu. Í samræmi við hlutverk sitt undirbýr, skipuleggur og fjármagnar stofnunin verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Fjármögnun verkefna skal eftir föngum vera í samstarfi við aðra. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra haghafa.  Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins.

Helstu niðurstöður úr árshlutareikningi Byggðastofnunar janúar-júní 2017

  • Tap tímabilsins nam 20,1 milljón króna.
  • Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 23,06% en skal að lágmarki vera 8% skv. lögum um fjármálafyrirtæki.  Þá skal stofnunin viðhalda 2,75% eiginfjárauki að auki sem hækkar í 3,75% frá 1. janúar 2018
  • Hreinar vaxtatekjur voru 214,1 milljónir króna eða 48,6% af vaxtatekjum, samanborið við 217,2 milljónir króna (51,1% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur árið 2016.
  • Laun og annar rekstrarkostnaður nam 229,4 milljónum króna samanborið við 224,5 milljónir árið 2016.
  • Eignir námu 13.352 milljónum króna og hafa lækkað um 789 milljónir frá árslokum 2016.  Þar af voru útlán og fullnustueignir 10.394 milljónir.
  • Skuldir námu 10.464 milljónum króna og lækkuðu um 769 milljónir frá árslokum 2016.

Horfur

Eiginfjárstaða stofnunarinnar er áfram sterk og gefur henni færi á að vera öflugur bakhjarl fyrirtækja á landsbyggðinni.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is


 

Lykiltölur úr árshlutareikningi og samanburður við fyrri ár

 

 

  30.6.2017 2016 30.6.2016 2015 30.6.2015 2014
  Þús. kr. Þús. kr. Þús. kr. Þús. kr. Þús. kr. Þús. kr.
Rekstrarreikningur            
Vaxtatekjur 440.926 805.887 425.326 837.787 451.645 813.793
Vaxtagjöld 226.803 375.330 208.151 382.996 230.862 414.371
Hreinar vaxtatekjur 214.123 430.558 217.175 454.791 220.784 399.422
Rekstrartekjur 237.699 509.380 213.738 385.120 179.502 448.940
Hreinar rekstrartekjur 451.822 939.937 430.912 839.911 400.285 848.362
             
Rekstrargjöld 471.892 782.821 385.829 741.021 363.794 499.145
Hagnaður (-tap) -20.070 157.116 45.084 98.891 36.491 349.217
             
Með rekstrargjöldum eru færð framlög í afskriftareikning            
útlána og matsbreyting hlutabréfa 82.239 83.184 20.130 61.012 -4.301 -117.243
             
Efnahagsreikningur 30.6.2017 31.12.2016 30.6.2016 31.12.2015 30.6.2015 31.12.2014
Eignir            
Sjóður og kröfur á lánastofnanir 1.709.560 2.757.542 1.352.940 3.081.232 1.664.478 2.062.688
Útlán 10.393.833 10.125.127 10.668.476 10.307.529 10.688.090 10.821.632
Veltuhlutabréf 639.065 683.414 376.639 372.768 389.239 388.993
Hlutir í hlutdeildarfélögum 540.458 499.258 746.599 574.736 577.522 513.402
Aðrar eignir 68.638 74.883 68.912 80.511 73.209 130.216
Eignir samtals 13.351.555 14.140.223 13.213.566 14.416.775 13.392.538 13.916.931
             
Skuldir og eigið fé            
Lántökur 10.303.458 11.003.741 10.260.559 11.495.402 10.549.834 11.161.775
Aðrar skuldir 160.503 228.820 157.377 170.826 154.557 103.500
Skuldir samtals 10.463.962 11.232.561 10.417.936 11.666.228 10.704.392 11.265.275
             
Eigið fé 2.887.593 2.907.663 2.795.630 2.750.547 2.688.147 2.651.656
Skuldir og eigið fé samtals 13.351.555 14.140.223 13.213.566 14.416.775 13.392.538 13.916.931
             
Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings 0 0 0 0 16.450 18.807
             
Sjóðstreymi 30.6.2017 2016 30.6.2016 2015 30.6.2015 2014
Handbært fé frá rekstri 151.600 241.768 77.254 207.394 38.940 556.712
Fjárfestingarhreyfingar -511.135 -738.880 -510.014 373.684 212.022 569.609
Fjármögnunarhreyfingar -688.447 173.422 -1.295.531 437.466 -649.171 -1.484.841
Hækkun/(-lækkun) á handbæru fé -1.047.981 -323.690 -1.728.291 1.018.544 -398.210 -358.520
Handbært fé í ársbyrjun 2.757.542 3.081.232 3.081.232 2.062.688 2.062.688 2.421.208
Handbært fé í lok tímabils 1.709.560 2.757.542 1.352.940 3.081.232 1.664.478 2.062.688
             
Eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki 23,06% 22,74% 21,73% 21,56% 21,38% 20,20%

 


Byggastofnun Arshlutauppgjor 30.06.2017.pdf
Frettatilkynning v arshlutauppgjors 30.06.2017.pdf