English Icelandic
Birt: 2017-08-21 17:52:22 CEST
Landsnet hf.
Reikningsskil

Árshlutareikningur Landsnets 1. janúar - 30. júní

Sterk eiginfjárstaða og stöðugur rekstur
- Eitt stærsta framkvæmdaár í sögu Landsnets

Árshlutareikningur Landsnet fyrir janúar – júní  2017 var lagður fram í dag.  Afkoma fyrirtækisins er samkvæmt áætlunum.

Á síðasta ári var unnið að breyttri fjármögnun og lánasafnið fært að stærstum hluta úr verðtryggðum íslenskum krónum yfir í Bandaríkjadali sem skilaði betri vaxtakjörum. Þetta endurspeglast í uppgjörinu þar sem verulegar breytingar hafa verið á gengi gjaldmiðla á tímabilinu en áhrifa þeirra gætir ekki nema að óverulegu leyti í uppgjörinu í fyrsta skipti í langan tíma.

Mikilvægum áföngum hefur verið náð í endurfjármögnun fyrirtækisins, búið er að greiða niður lán og endurgreiðsluferli langtímalána hjá félaginu bætt til muna.

Fjárfestingar eru undir áætlunum en tafir vegna leyfisveitinga höfðu áhrif á framkvæmdir fyrirtækisins.  Stærsta einstaka verkefni ársins, að tengja Þeistareykjavirkjun og PCC á Bakka við meginflutningskerfið er þó á ætlun.

Helstu atriði árshlutareiknings

  • Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) nam 29,1 m. USD ( 3.010,8 millj.kr ) samanborið við 27,6 m. USD ( 2.853,2 millj.kr ) árið áður og er daglegur rekstur félagsins stöðugur. Hagnaður Landsnets hf. samkvæmt rekstrarreikningi nam 10,5 m. USD (1.089,6 millj.kr) fyrstu 6 mánuði ársins 2017 samanborið við 2,6 m. USD (273,2 millj.kr)  tap á sama tímabili árið 2016.  
  • Heildareignir félagsins í lok tímabilsins námu 833,8 m. USD (86.160,9 millj.kr) samanborið við 770,8 m. USD (79.656,2 millj.kr)  í lok árs 2016. Heildarskuldir námu í lok tímabilsins 514,2 m. USD (53.136,5 millj.kr) samanborið við 462,4 m. USD (47.785,0 millj.kr) í lok árs 2016. 
  • Eiginfjárhlutfall í lok tímabilsins var 38,3% samanborið við 40,0% í lok ársins 2016. Eigið fé í lok tímabilsins nam 319,6 m. USD (33.024,4 millj.kr) samanborið við 308,4 m. USD (31.871,2 millj.kr) í lok árs 2016.
  • Lausafjárstaða Landsnets er sterk, handbært fé í lok júní nam 56,6 m. USD (5.845,9 millj.kr) og handbært fé frá rekstri á tímabilinu nam 37,3 m. USD (3.852,4 millj. kr).

 

Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri:

„ Það er ánægjulegt að sjá að  árshlutareikningurinn sýnir að rekstur Landsnets er stöðugur og eiginfjárstaða félagsins er sterk. Stefnan sem mörkuð var við endurfjármögnunina hefur þegar skilað miklum árangri . Við erum á lygnum sjó og höfum sett okkur það markmið að  skila stöðugum, arðsömum og hagkvæmum rekstri. Á næstu misserum munum við ljúka við endurfjármögnun félagsins.  Þrátt fyrir tafir vegna leyfismála stefnir í að þetta verði eitt mesta fjárfestingaár í sögu fyrirtækisins.“

Hér er hægt að nálgast árshlutareikninginn: www.landsnet.is

Frekari upplýsingar veitir:

Guðlaug Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri fjármála, sími 563 9311 eða netfang gudlaugs@landsnet.is

 

Til viðmiðunar eru sýndar íslenskar krónur, notast var við gengi USD /ISK 103,34

 

 

 

 

 

 


Landsnet arshlutareikn 300617.pdf
Tilkynning til Kauphallar - arshlutareikningur 2017.pdf