Icelandic
Birt: 2017-06-19 11:19:07 CEST
Sjóvá-Almennar tryggingar hf.
Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Sjóvá: Ómar Svavarsson lætur af störfum

Ómar Svavarsson, framkvæmdastjóri sölu og ráðgjafar, hefur sagt starfi sínu lausu hjá Sjóvá en honum hefur boðist starfstilboð á öðrum vettvangi. Ómar tók við starfi framkvæmdastjóra hjá Sjóvá í janúar 2015. Ómar starfaði sem framkvæmdastjóri sölu og þjónustusviðs Vodafone frá árinu 2005 og sem forstjóri frá 2009, en hann starfaði hjá Sjóvá frá 1995 til 2005. Ómar mun láta af störfum á næstu dögum. Málefni  sölu og ráðgjafar munu tímabundið heyra undir Hermann Björnsson, forstjóra Sjóvá.