English Icelandic
Birt: 2017-06-15 14:20:39 CEST
Orkuveita Reykjavíkur
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Jákvæðar horfur hjá OR að mati Moody‘s

Reykjavík, 2017-06-15 14:20 CEST -- Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody‘s hefur breytt horfum í mati sínu á lánshæfi Orkuveitu Reykjavíkur (OR; Reykjavík Energy) í jákvæðar úr stöðugum. Einkunnin er áfram Ba2.

Í viðhengdri tilkynningu Moody‘s segir að ástæða betri horfa sé batnandi rekstrarafkoma, lækkandi skuldir og að sterkari lausafjárstaða síðustu ár. Þá séu nú vaxandi líkur á að OR standist kröfur um hærri lánhæfiseinkunn í náinni framtíð.

Fjárhagur OR hefur styrkst, segir ennfremur í tilkynningunni. Það rakið til festu við framvindu Plansins, sem hleypt var af stokkunum árið 2011. Mikil staðfesta stjórnenda við að fylgja því eftir leiddi til þess að markmiðum þess var náð talsvert áður en því lauk, í árslok 2016. Matsfyrirtækið á von á því að OR sýni áfram skynsemi í fjár- og áhættustýringu sem gefi fyrirtækinu gleggri sýn á fjármálin og geti gert OR kleift að draga úr áhættu vegna þróunar vaxta, gengis og álverðs.

         Nánari upplýsingar:
         Ingvar Stefánsson
         framkvæmdastjóri fjármála OR
         516 6100


Moodys Rating Action Jun 2016.pdf