Icelandic
Birt: 2017-05-31 19:37:41 CEST
Brim hf.
Reikningsskil

Uppgjör HB Granda hf. á fyrsta ársfjórðungi 2017

·     Rekstrartekjur samstæðunnar voru 42,0 m€

·     EBITDA var 7,4 m€ (17,6%)

·     Hagnaður tímabilsins var 3,7 m€

·     Handbært fé frá rekstri nam 4,1 m€

 

Rekstur fyrstu þriggja mánaða ársins 2017

Rekstrartekjur HB Granda hf. á fyrsta ársfjórðungi ársins 2017 námu 42,0 m€, samanborið við 44,0 m€ árið áður.  Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 7,4 m€ eða 17,6% af rekstrartekjum, en var 12,4 m€ eða 28,2% árið áður.  Þann 14. desember 2016 hófst verkfall sjómanna sem leystist ekki fyrr en 18. febrúar 2017.  Eftir það hófst snörp og stutt loðnuvertíð, þar sem skip félagsins veiddu um 26.800 tonn.  Áhrif fjáreignatekna og fjármagnsgjalda voru neikvæð um 0,5 m€, en voru neikvæð um 0,3 m€ á sama tíma árið áður.  Áhrif hlutdeildarfélags voru jákvæð um 0,5 m€, en voru neikvæð um 1,2 m€ árið áður.  Hagnaður fyrir tekjuskatt var 5,0 m€ og hagnaður tímabilsins var 3,7 m€.  

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 476,9 m€ í lok mars 2017. Þar af voru fastafjármunir 386,8 m€ og veltufjármunir 90,1 m€.  Eigið fé nam 253,5 m€, eiginfjárhlutfall í lok mars var 53,2%, en var 55,6% í lok árs 2016. Heildarskuldir félagsins voru í marslok 223,4 m€.

Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri nam 4,1 m€ á tímabilinu, en nam 6,2 m€ á sama tíma fyrra árs.  Nettó fjárfesting í rekstrarfjármunum nam 3,1 m€ og fjárfesting vegna nýrra skipa nam 13,3 m€.  Fjármögnunarhreyfingar voru jákvæðar um 14,9 m€.  Handbært fé hækkaði því um 2,6 m€ á tímabilinu og var í lok mars 10,0 m€.

Meginniðurstöður færðar til íslenskra króna

Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi fyrsta ársfjórðungs 2017 (1 evra = 118,7 kr) verða tekjur 5,0 milljarðar króna, EBITDA 0,9 milljarður og hagnaður 0,4 milljarðar.  Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á gengi 31. mars 2017 (1 evra = 120,4 kr) verða eignir samtals 57,4 milljarðar króna, skuldir 26,9 milljarðar og eigið fé 30,5 milljarðar.

Skipastóll og afli

Skipafloti félagsins var óbreyttur frá áramótum.

Á fyrsta ársfjórðungi ársins 2017 var afli skipa félagsins 7,1 þúsund tonn af botnfiski og 26,8 þúsund tonn af uppsjávarfiski.

Kynningarfundur þann 1. júní 2017

Opinn kynningarfundur um afkomu félagsins á fyrsta ársfjórðungi verður haldinn fimmtudaginn 1. júní klukkan 8:30 í Borgartúni 19 á Kauphallardögum Arion banka. Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri mun kynna uppgjörið og svara spurningum.


Afkoma HB Granda hf 1Q2017.pdf
HB Grandi Arshlutareikn 31.03.2017.pdf