Icelandic
Birt: 2017-05-24 15:20:37 CEST
Reginn hf.
Fjárhagsdagatal

Reginn hf. birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2017

Reginn mun birta samþykkt uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2017, eftir lokun markaða þriðjudaginn 30. maí 2017.

Af því tilefni býður Reginn hf. til opins kynningarfundar miðvikudaginn 31. maí nk. kl. 8:30 á skrifstofu Regins í Smáralind, Hagasmára 1, 1. hæð, Kópavogi. Gengið er inn í skrifstofur Regins beint frá bílastæðahúsi við Norðurturninn.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

Helgi S. Gunnarsson forstjóri Regins kynnir uppgjörið og svarar spurningum að lokinni kynningu. 

Boðið verður upp á morgunverð.

Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið fjarfestatengsl@reginn.is

 

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262