English Icelandic
Birt: 2017-05-08 12:47:26 CEST
Orkuveita Reykjavíkur
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Jákvæðar horfur hjá OR

Reykjavík, 2017-05-08 12:47 CEST -- Matsfyrirtækið Reitun hefur breytt horfum í lánshæfismati á Orkuveitu Reykjavíkur úr stöðugum í jákvæðar. Matseinkunnin er áfram i.AA3.

Í tilkynningu um matið segir meðal annars:

„Planinu, aðgerðaráætlun vegna fjárhagsvanda OR 2011 – 2016 er lokið og árangurinn er umtalsvert betri en þau markmið sem sett voru. Stjórnendur hafa undanfarin ár náð miklum árangri í að byggja upp fjárhagslegan styrk Orkuveitunnar. Dregið hefur úr skuldsetningu og markaðsáhættu, fyrirtækið starfar í talsvert betra rekstrarumhverfi og fjárhagskennitölur hafa batnað til muna.“

Þá segir að til að bæta lánshæfi fyrirtækisins enn frekar þurfi OR að halda áfram á sömu braut; að lækka skuldir, draga úr markaðsáhættu og styrkja lausafjárstöðuna. Standa þurfi við þau arðgreiðsluskilyrði sem fyrirtækið hefur sett sér og tryggja áframhaldandi aðgengi að fjármálamörkuðum.

         Nánari upplýsingar:
         Ingvar Stefánsson
         framkvæmdastjóri fjármála OR
         516 6100


Reitun Lanshfismat OR - mai 2017.pdf