Icelandic
Birt: 2017-05-05 21:42:20 CEST
Brim hf.
Niðurstöður hluthafafundar

HB Grandi hf – Niðurstöður aðalfundar haldinn 5. maí 2017

Aðalfundur samþykkti samhljóða ársreikning félagsins

Fundurinn samþykkti eftirfarandi tillögur:

Tillaga um greiðslu arðs

Aðalfundur HB Granda hf. haldinn 5. maí 2017 samþykkir að greidd verði 1 kr. á hlut í arð vegna ársins 2016, alls að fjárhæð 1.813.658.723 kr. Arðurinn verður greiddur 31. maí 2017. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 5. maí 2017 og arðleysisdagur því 8. maí 2017.

Arðsréttindadagur er 9. maí 2017, arður greiðist þeim sem skráðir eru í hlutaskrá í lok arðsréttindadags.

Meðfylgjandi tillaga að starfskjarastefnu var samþykkt

Sjá viðhengi

Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna

Samþykkt var að þóknun til stjórnarmanna vegna næsta árs verði 264.000 kr. á mánuði og formaður fái tvöfaldan hlut.

Kjör stjórnar

Í stjórn voru kjörin: Anna G. Sverrisdóttir, Halldór Teitsson, Hanna Ásgeirsdóttir, Kristján Loftsson og Rannveig Rist.

Kosning endurskoðanda

Samþykkt var að endurskoðandi félagsins fyrir árið 2017 verði Deloitte ehf.

Eftirfarandi tillaga um heimild stjórnar til kaupa á eigin bréfum var samþykkt

Aðalfundur veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi má eigi vera hærra en í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem hærra er. Heimild þessi skal aðeins nýtt í þeim tilgangi að koma á formlegri endurkaupaáætlun eða til þess að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup félagsins á eigin bréfum, t.d. með útboðsfyrirkomulagi, enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þáttöku í slíkum viðskiptum. Aðrar eldri heimildir til kaupa á eigin hlutabréfum falla úr gildi við samþykkt heimildar þessarar.


HB Grandi starfskjarastefna.pdf