Sjóvá: Breytingar á framkvæmdastjórn
Það hefur orðið að samkomulagi að Sæmundur Sæmundsson láti af störfum sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá Sjóvá. Sæmundur hefur starfað sem framkvæmdastjóri sviðsins í rúm 5 ár og hefur á þeim tíma unnið afar gott starf þar sem sviðið hefur m.a. farið í gegnum tvær vottanir, jafnlaunavottun og ISO-27001 upplýsingaöryggisvottun. Sæmundur hefur einnig leitt upplýsingatæknideild Sjóvár í gegnum mikla umbreytingu sem falið hefur í sér einfaldari og betri grunnstoðir og agaðra verklag. Um er að ræða fækkun í framkvæmdastjórn félagsins sem mun í framhaldinu skipa 4 framkvæmdastjóra, tvær konur og tvo karla ásamt forstjóra. Í kjölfar þessara breytinga verður skipuriti félagsins breytt og verður það kynnt á næstu dögum.
Ég vil fyrir hönd Sjóvár þakka Sæmundi afar gott og farsælt samstarf með óskum um velfarnað á nýjum vettvangi.
Sjóvá-Almennar tryggingar hf.
Hermann Björnsson, forstjóri
|